Ársskýrsla tengiliðs Shetland sheepdog vegna ársins 2025
Árið 2025 var stórgott ár hjá Sheltie.
36 hvolpar fæddust í 9 gotum hjá 7 ræktendum og 4 tíkur voru fluttar inn, blá tík frá Póllandi og tricolour tíkur frá Litháen, Noregi og Svíþjóð.
Nokkrir hundar féllu frá og þar vil ég sérstaklega nefna CIB ISCH Moorwood Simply Pleasant, Nemó. Nemó átti 7 got og er því fyrirferðarmikill í okkar litla stofni og ættfaðir margra okkar hunda.
Þann 31. desember 2025 voru 205 hundar skráðir lifandi samkvæmt mínum bókum.
Skráningum á sýningar fækkaði og voru að meðaltali um 18 hundar, með hvolpum. Árin á undan voru þær á milli 20 og 25 á hverri sýningu. Þetta er ekki æskileg þróun, sértaklega þegar litið er til þess að fleiri eru farnir að rækta tegundina og hvolpum að fjölga. Vil ég hvetja ræktendur til að ýta á eftir hvolpakaupendum sem fá efnilega hunda frá þeim (sem mögulega má nota í ræktun) að sýna þá, helst nokkrum sinnum, svo betur megi fygljast með stofninum okkar.
Stigahæsti hundur tegundar var ISCH Undralands Þoka (annar stigahæsti hundur deildar) og stigahæstur af gagnstæðu kyni, - öldungur tegundar og stigahæsti öldungur deildarinnar var pabbi hennar, MultiCh. Moorwood Special Bookmaker. Stigahæstu ungliðar og jafnar voru þær ISJCh Moorwood Precious Delight og ISJCh Stekkjardals Easy Peasy Lemon Squeezy. Stigahæsti Sheltie í hlýðni, spori og rallý hlýðni var OB-I RL-I RL-II Islands Sheltie Whole Lotta Love.
Tegundin eignaðist metfjölda nýrra meistara á árinu:
Rakkarnir Bláfells Hraunar, Sandviksheltie Dream Big og Magic Mike With Molson urðu íslenskir sýningameistarar. Þá varð Ch. Morwood Special Bookmaker íslenskur, alþjóðlegur og Norðurlanda öldungameistari.
Tíkurnar Stekkjardals Easy Peasy Lemon Squeezy, Moorwood Precious Delight og Art-City (FCI) Alisha urðu islenskir ungliðameistarar, Bláfelds Iðunn og Undralands Dögg urðu islenskir meistarar og ISCH Island Shelties Winter Wonder varð íslenskur öldungameistari.
11 hundar voru augnskoðaðir á árinu og var eitt tilfelli af Sheltie Retinopathy staðfest. Ræktun er ekki bönnuð frá slíku en ekki er mælt með henni. Annað var óverulegt.
Tengiliður heldur úti vefsíðu þar sem finna má upplýsingar um skráða Shetland sheepdog hunda. Vefslóðin er www.sheltie.is, en á síðunni eru m.a. niðurstöður heilbrigðisprófa, úrslit og umsagnir frá sýningum, upplýsingar um hvolpa auk annars fróðleiks um hundakynið.
Janúar 2026
Lijla Dóra Halldórsdóttir, tengiliður.