SHETLAND SHEEPDOG Á ÍSLANDI
  • Markmið
  • Gagnagrunnur
  • Sýningar
  • Heilbrigði
  • Got / Ræktendur
  • Umhirða
  • Umfjöllun
Ársskýrsla tengiliðs Shetland sheepdog vegna ársins 2024

Árið 2024 hrukkum við nokkur ár aftur í tímann í nýskráningum sem voru einungis ellefu (voru 22 árið á undan). Þann 31. desember 2024 voru 177 skráðir lifandi Shetland sheepdog hundar samkvæmt mínum tölum

Stekkjardalsræktun var með eitt fimm hvolpa got og Þjóðholts ræktun með eitt 3gja hvolpa got. Þá fæddust þrír hvolpar hjá Bláfeldsræktun og sex hjá (nafnlausri) ræktun norður í landi í árslok en skráning þeirra fellur á árið 2025.

Þrír hundar voru fluttir inn, þau Melsvuma Gorgeous In Bahamas, tri tík sem kom frá Litháen, sable rakkinn Magic Mike of Molson, sem kom til landins frá Skotlandi í árslok 2023 og sable tíkin Moorwood Precious Delight frá Svíþjóð.

Nokkrir hundar féllu frá og þar vil ég sérstaklega nefna CIB ISCH Robba Dan Krumma, tricolor rakka og CIB ISCH JCH Undralands Ego, sem var stigahæsti Sheltie árið 2017.

Svipaðar skráningar voru á sýningar ársins og árið þar áður, að meðaltali 22 pr. sýningu. Stigahæsti hundur tegundar annað árið í röð varð tíkin CIB ISCH Undralands A Star Is Born og stigahæstur af gagnstæðu kyni var hinn norsk-innflutti Sandviksheltie Dream Big. JCh Bláfelds Hraunar var sigursælasti ungliði og CIB, NORDICCh, ISCH, ISVCh Undralands Force Majeure, a.k.a. Sóley sæta, stigahæsti öldungur tegundar. Stigahæsta ræktun var Undralands ræktun.

Tegundin eignaðist nokkra nýja meistara á árinu: Undralands A Star Is Born kláraði alþjóðlegan meistaratitil, Bláfelds Hraunar varð ungliðameistari og Sandviksheltie Dream Big fékk síðara ungliðastigið. Undralands Force Majeure bætti við sig ISVCh titli.

17 hundar voru augnskoðaðir á árinu og engir alvarlegir augnsjúkdómar staðfestir.

Á vefsíðunni www.sheltie.is má finna upplýsingar um skráða Shetland sheepdog hunda, m.a. niðurstöður heilbrigðisprófa, úrslit og umsagnir frá sýningum, upplýsingar um hvolpa auk annars fróðleiks um hundakynið.

Janúar 2025 Lilja Dóra Halldórsdóttir, HRFÍ tengiliður Shetland sheepdog.
Powered by Create your own unique website with customizable templates.
  • Markmið
  • Gagnagrunnur
  • Sýningar
  • Heilbrigði
  • Got / Ræktendur
  • Umhirða
  • Umfjöllun