SHETLAND SHEEPDOG Á ÍSLANDI
  • Markmið
  • Gagnagrunnur
  • Sýningar
  • Heilbrigði
  • Got / Ræktendur
  • Umhirða
  • Umfjöllun
Ársskýrsla tengiliðs Shetland sheepdog vegna ársins 2023
 
Árið 2021 kom 21 hvolpur í heiminn í fjórum gotum hjá þremur ræktendum í tegundinni. Tvö gotanna voru sjö hvolpa, eitt fjögurra og eitt þriggja hvolpa sem var afrakstur sæðingar með innflutti sæði frá Póllandi. Það er því af sem áður var þegar gotin okkar voru einn til þrír hvolpar að jafnaði, en til gamans má geta að meðalgotstærð á Norðurlöndum er um 3,2 hvolpar í dag. Einungis eitt prósent Sheltiegota á Norðurlöndum ná sjö hvolpum. 21 hvolpur samtals er annars verulegur samdráttur frá árinu 2022 þegar 41 hvolpur var skráður.
 
Tveir rakkar voru fluttir inn á árinu, annar frá Noregi og hinn frá Skotlandi, báðir eiga vonandi eftir að nýtast í ræktun. Þá er ein tík komin í einangrun það sem af er þessu ári og kemur hún frá Litháen.
 
Meðal þeirra hunda sem féllu frá á árinu voru meistararnir Moorwood Caribbean Night Copi (Moli) og Bláfelds Snowflake (Drífa), sem bæði eiga afkomendur.
 
Þann 31. desember 2023 voru 173 skráðir lifandi Shetland sheepdog hundar.
 
Svipaðar skráningar voru á sýningar ársins og árið þar áður, að meðaltali 22 pr. sýningu. Stigahæsti hundur tegundar þetta varð tíkin Ch. Undralands A Star Is Born, en hún varð BOB á fjórum sýningum og vann sér til frægðar að verða BIS á alþjóðlegri sýningu HRFÍ í október. Stigahæstur af gagnstæðu kyni var Ch. Moorwood Special Bookmaker. JCh Undralands Þoka var sigursælasti ungliði og Ch Speedlines Chocolate Crisps stigahæsti öldungur tegundar. Þá voru hvolpar af tegundinni sigursælir, en í tvígang hrepptu þeir titilinn besta ungviði dags á all-breed sýningum félagsins, Bláfelds Eldey í ágúst og Kirkjufells Blue Pearl í október. Stigahæsta ræktun í tegund var Undralands ræktun.
 
Tegundin eignaðist þrjá nýja ISCh og einn ISJCh á árinu. Undralands A Star Is Born, Undralands Once Upon A Time og Bláfelds Karli urðu íslenskir meistarar og Undralands Þoka ungliðameistari.
 
7 hundar voru augnskoðaðir á árinu og engir alvarlegir augnsjúkdómar greindir.
 
Tengiliður heldur úti vefsíðu þar sem finna má upplýsingar um skráða Shetland sheepdog hunda. Vefslóðin er www.sheltie.is, en á síðunni eru m.a. niðurstöður heilbrigðisprófa, úrslit og umsagnir frá sýningum, upplýsingar um hvolpa auk annars fróðleiks um hundakynið.
 
Almennt er tegundin í ágætis málum, góð samstaða og samvinna er á milli ræktenda og metnaður fyrir því að standa vel að innflutningi og ræktun. Sýningaþjálfanir voru haldnar fyrir allar sýningar sl. árs.
 
Janúar 2024
Lilja Dóra Halldórsdóttir,
HRFÍ tengiliður Shetland sheepdog.
Powered by Create your own unique website with customizable templates.
  • Markmið
  • Gagnagrunnur
  • Sýningar
  • Heilbrigði
  • Got / Ræktendur
  • Umhirða
  • Umfjöllun