|
Shetland Islands í Skotlandi
(Hjaltlandseyjar)
|
Uppruna Shetland Sheepdog má rekja til Shetland Islands í Skotlandi (Hjaltlandseyja). Lengi vel var tegundina bara að finna á eyjunum þar sem þeir mótuðust að þörfum bændanna. Þar sem lífsbaráttan var erfið gátu bændurnir ekki leyft sér að nota stóran fjárhund (eins og Collie) og þannig mótaðist tegundin. Þeir þurftu litlan, þurftarlítin hund sem gæfi þó hinum stærri ekkert eftir í fjölhæfni og gáfum ásamt snerpu og lagni við fjárgæslu og smölun. Samhliða því þurftu þeir einnig að vakta fjölskyldu og heimili. Þeir þurftu því að vera liprir, vökulir og skarpir.
Upphaflega Sheltarnir voru útlitslega lítið líkir því sem þeir eru í dag. Gamlar myndir sýna litla svarta hunda sem voru ekki samræmdir í útliti. Þetta hafa verið ýmiskonar blendingar fyrst í stað, sem höfðu þessa eiginleika, ásamt einhverjum eintökum af smávöxnum Rough Collie. Við þessa eyjahunda blönduðust síðan ýmsir hundar (m.a. Norskur Búhundur og Íslenskur Fjárhundur), þ.e. hundar sem komu með hvalbátum og fiskiskipum frá Íslandi og öðrum norrænum löndum. Afleiðingarnar af þeim ástarfundum skýtur ennþá upp í dag með upphringuðu skotti og kolóttu andliti.
|