Klær
Ef klærnar á hundinum slitna ekki eðlilega er nauðsynlegt að klippa þær. Séu klær of langar geta þær aflagað fót hundsins og hann fer að nota fótinn rangt. Varast ber að klippa ekki of nálægt kvikunni (sjá mynd til hægri). Hægt er að láta klippa klærnar á hundasnyrtistofu fyrir lítinn pening.
Loppur
Ef hundurinn gengur á söltuðum gangstígum að vetri til er ráðlegt að skola loppurnar vel með vatni þegar heim er komið og þurrka síðan. Klippa þarf hárin á milli þófanna og klónna reglulega svo að þau kleprist ekki saman og angri hundinn.
Feldhirða
Er frekar auðveld. Bursta þarf feldinn reglulega og aðgæta flókamyndun bak við eyru, í makka, aftan á lærum og í skotti. Tíð böð óþörf en einna helst nauðsynlegt þegar hann fer úr hárum. Ef ætlunin sé að vera með sýningahund þarf að nostra meira við feldinn.
|