FCI-ræktunarmarkmið No 88

SHETLAND SHEEPDOG


Upprunaland: Bretland
Fyrsti útgáfudagur ræktunarmarkmiðs: 24.06.87

FCI-flokkun: Tegundarhópur 1, flokkur 1: fjárhundur
Vinnuprófs er ekki krafist.

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

HEILDARSVIPUR – Smávaxinn, síðhærður og sérlega fallegur vinnuhundur, laus við klaufsku og grófeika. Útlínur samsvara sér vel og einstakir líkamshlutar eru í jafnvægi við aðra. Ríkulegur feldur, makki og fanir, falleg lögun höfuðs og blíðlegur svipur eru mikilvægir þættir í heildarsvip.

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

EIGINLEIKAR – Árvakur, blíður, gáfaður, sterkur og fjörlegur

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

SKAPGERÐ – Ástúðlegur og þóknanlegur húsbónda sínum, fálátur við ókunnuga en aldrei taugaveiklaður.

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

HÖFUÐ – Höfuðið er fágað; skoðað ofan frá og frá hlið er lögun þess eins og langur, rúnnaður fleygur sem mjókkar frá eyrum að nefi. Samræmi er á milli breiddar höfuðkúpu og lengdar hennar og trýnisins. Stærð höfuðs skal vera í samræmi við stærð hundsins. Höfuðkúpan er flöt að ofan, hófleg breidd er á milli eyrna og hnakkabeinið ekki áberandi. Kinnar eru sléttar og falla þétt að vel rúnuðu trýninu. Höfuðkúpan er jafnlöng trýninu, deilistaða er í innri hvörmum augna. Yfirlína höfuðkúpu er samsíða efri línu trýnisins, með litlu en þó ákveðnu stoppi. Nef, varir og augnhvarmar eru svartir. Dæmigerður svipur tegundarinnar næst með fullkomnu jafnvægi og samsetningu höfuðkúpu og andlits, staðsetningu, lögunnar og lit augna, sem og réttri staðsetningu og burði eyrna.

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

MUNNUR– Kjálkar skulu liggja samsíða, vera réttir og sterklegir. Neðri kjálki vel þroskaður. Varir liggja þétt að kjálkum. Tennur heilbrigðar og með fullkomnu skærabiti. Hundarnir skulu helst vera fulltenntir, með 42 rétt staðsettar tennur.

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

AUGU
– Miðlungs stór, skásett og möndlulaga. Dökkbrún, en annað eða bæði augu geta þó verið blá eða bláflikrótt í hundum af bláa (blue-merle) litabrigðinu.

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

EYRU
– Lítill, hóflega breið neðst, staðsett tiltölulega þétt saman ofaná höfuðkúpunni. Í afslöppun liggja þau aftur, en í viðbragðstöðu færast þau fram og eru borin hálf-upprétt með eyrnabrodda framfallandi.

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

HÁLS
– Sterklegur, vel hvelfdur og nógu langur til að bera höfuðið með reisn.

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

FRAMHLUTINN
– Axlirnar sérlega vel afturlagðar, aðskildar við herðakamb með hryggjarlið, en axlablöðin liggja niður til hliðar og rúma hæfilega stórt rifjahylkið. Axlarliðir vel vinklaðir. Uppleggur og axlablað ættu að vera um það bil jafnlöng. Olnbogi skal vera í sömu fjarlægð frá jörðu og að herðakambinum. Framfætur beinir ef horft er á þá að framanverðu, vöðvastæltir, lýtalausir og með sterka beinabyggingu. Kjúkur sterkar og sveigjanlegar.

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

BOLUR
– Lengdin frá öxlunum að neðsta hluta lendanna er örlítið meiri en hæðin á herðakambinn. Brjóstkassi djúpur og nær niður að olnboganum. Rifbeinin eru vel hvelfd en þrengjast þegar dregur neðar, svo að framfætur og axlir séu frjálsar. Bak er beint en sveigist mjúklega niður við lend.

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

AFTURHLUTINN
– Lærin eru breið og vöðvamikil, lærbeinin leggjast hornrétt að mjaðmagrindinni. Hnjáliðir vel vinklaðir, hækilbeygjur vel vinklaðar og djúpar með sterklegum beinum. Hæklar eru beinir séðir aftanfrá.

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

LOPPUR
– Sporöskjulaga, þófarnir eru vel bólstraðir, tærnar eru hvelfdar og liggja þétt saman.

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

SKOTT
– Lágsett, rófubein mjókkar niður og nær í það minnsta niður að hæklum, vel loðið og með smá sveif uppávið. Á hreyfingu getur það verið borið hærra, en þó aldrei hærra en að baklínu. Er aldrei með hlykk.

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

HREYFINGAR
– Liprar, mjúkar og þokkafullar, með afturfótaspyrnu , hámarks yfirferð með lágmarks fyrirhöfn. Skeiðandi, fléttandi, rúllandi, stirðar eða stífar og tiplandi hreyfingar eru óæskilegar.

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

FELDUR
– Tvöfaldur; yfirfeldur sléttur, langur og grófur, þel er mjúkt, snöggt og þétt. Ríkulegur makki og fanir, síðar fanir á framfótum. Afturfætur eru vel hærðir fyrir ofan hækla, en frekar snöggir fyrir neðan. Andlit er snögghært. Afar óæskilegt er að hundar af þessari tegund séu snögghærðir.

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

LITUR
Gulur (sable) - Hreinn eða skyggður; allt frá ljósgylltu að dökkum mahognylit, litir skulu vera í skýrum tónum. Úlfgrá eða grá litabrigði eru óæskileg.

Þrílitur (tricolour)
- Hrafnsvartur búkur, æskilegt er að gulbrúni (tan) liturinn sé skýr og djúpur.

Blár (blue merle) - hreinn silfurblár, svart- dröfnóttir/ýrðir. Skýrir gulbrúnir (tan) litreitir æskilegir en ekki nauðsynlegir. Stórir svartir flekkir eða gul/ryðleit slikja á feldi, hvort sem er á yfirhárum eða þeli, er óæskileg; heildaráhrifin eiga að vera bláleit.

Svartur & hvítur (black & white) og Svartur & gulbrúnn (black & tan) - eru líka viðurkenndir litir.

Hvítur litur - Blesa, brjóstkassi, kragi, fætur, fanir og á skottendi getur verið hvítur. Æskilegt er að öll eða einhver þessara svæða séu hvít, (nema í svörtum og gulbrúnum) en ekki nauðsynlegt. Hvítir flekkir á búk eru mjög óæskilegir.


--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

STÆRÐ
– Æskileg hæð á herðarkamb: Rakkar 37 sm (14.½ tomma), tíkur 35.5 sm (14 tommur). Meira en 2.5 sm (1 tomma) yfir eða undir þessum hæðum eru óæskilegir.

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

GALLAR
- Öll frávik frá ofangreindri lýsingu eru gallar sem skulu dæmdir í réttu hlutfalli við frávikið frá ræktunarmarkmiðinu.

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

ATHUGIÐ
– Bæði eistun á rökkum skulu vera af eðlilegri stærð og rétt staðsett í pungnum.

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------




Hægt er að skoða hér nánari útskýringar á ræktunarmarkmiðum í bækling sem Enski Sheltie Klúbburinn gaf út >>




Forsíða vefs
Fréttasafn
Uppruni Shetland Sheepdog
Saga Sheltie á Íslandi
Ræktunarmarkmið
Sýningar
Sýningarúrslit
Listi yfir Sheltie á Íslandi
Farnir vinir
Meistarar
Innfluttir hundar
Myndasafn
Hundafimi
Umhirða og heilsa
Heilsufarskröfur/Undaneldisdýr

Lilja Dóra Halldórsdóttir
Hegranesi 31, 210 Garðabær.

liljahalldorsdottir@gmail.com

Veitir allar nánari upplýsingar um tegundina fyrir hönd Hundaræktarfélags Íslands. 
Frábær bók, mikið af myndum, auðlesin, ALLT tekið fyrir.

The Complete Shetland Sheepdog

Höfundur: Margaret Norman


Svokölluð Biblía. Allt sem þú þarft að vita sem snýr að Sheltie.

Sheltie Talk

Höfundar: Betty Jo McKinney og Barbara Rieseberg



Hægt er kaupa þessar bækur á
amazon.com
Róbert Daníel Jónsson

Senda póst á vefstjóra
© 2006 - 2010 sheltie.is - Allur réttur áskilinn.