Shetland Shepdog er frægur fyrir góðan árangur í Hundafimi.

Hundafimi - Agility er alhliða íþróttagrein fyrir hunda. Í hundafimi læra hundarnir að leysa ýmsar skemmtilegar þrautir svo sem að: skríða í gegnum göng eða poka, hoppa yfir margar gerðir af hindrunum og í gegnum dekk, jafnvægisæfingar á brú, klifra yfir vegg og ganga yfir vegasalt. Auk þess lærir hann að vinna með eiganda sínum skv. skipunum og bendingum. Með því að æfa hundafimi verður hundurinn meira meðvitaður um líkama sinn, lærir að vinna þrátt fyrir truflun frá öðrum hundum og fær andlega örvun sem gerir það að verkum að hundurinn verður rólegur og glaður heimilishundur sem fær að vinna.

Einnig er hundafimi góð íþrótt fyrir eigandann þar sem eigandinn hleypur með hundinum, en hlaupin miðast samt við getu hvers og eins.

Hvað þýðir Agility?
Fimleiki, liðugleiki og mjúkleiki.

Markmið í Hundafimi
Að fara ákveðna braut á sem skemmstum tíma villulaust.

Grunnhlýðni fyrir Hundafimi
- Sitja
- Liggja
- Bíða
- Koma (innkall)



Got systurnar Yrar-Alúð "Píla" og Yrar-Aleta "Birta"
hafa báðar náð góðum árangri í hundafimi.

Birta hefur orðið Íslandsmeistari í sínum flokki og Píla unnið til verðlauna í byrjendaflokki og var í öðru sæti í opnum flokki á meistaramóti HRFÍ 2006. Báðar hafa þær tekið þátt í hundafimi sýningum á vegum Íþróttadeildar HRFÍ.


Yrar-Aleta "Birta" að fara brúnna
(Hundafimisýning við Ylströndina 17. 06´00)
Yrar-Aleta "Birta" að fara yfir vegasaltið
(Hundafimisýning við Ylströndina 17. 06´00)

Yrar-Aleta "Birta" að fara í gegnum vefið
(Hundafimisýning við Ylströndina 17. 06´00)
Yrar-Alúð "Píla"
Sigurvegari í byrjendaflokki smáhunda árið 2000.
Yrar-Aleta "Birta" Íslandsmeistari smáhunda árið 2000
Sigurvegarar í opnum flokki smáhunda, f.v. Birta, Moli og Húgó ásamt stjórnendum sínum.


ÆFINGAR/NÁMSKEIÐ Í HUNDAFIMI

Skráningar og fyrirspurnir er hægt að senda á hundafimi@hotmail.com

 
Forsíða vefs
Fréttasafn
Uppruni Shetland Sheepdog
Saga Sheltie á Íslandi
Ræktunarmarkmið
Sýningar
Sýningarúrslit
Listi yfir Sheltie á Íslandi
Farnir vinir
Meistarar
Innfluttir hundar
Myndasafn
Hundafimi
Umhirða og heilsa
Heilsufarskröfur/Undaneldisdýr
Guðrún Th. Guðmundsdóttir

Miðtún 4, 800 Selfoss
Sími: 486-6443/866-3649

Netfang:
brolt@centrum.is

Veitir allar nánari upplýsingar um tegundina fyrir hönd Hundaræktarfélags Íslands.
Frábær bók, mikið af myndum, auðlesin, ALLT tekið fyrir.

The Complete Shetland Sheepdog

Höfundur: Margaret Norman


Svokölluð Biblía. Allt sem þú þarft að vita sem snýr að Sheltie.

Sheltie Talk

Höfundar: Betty Jo McKinney og Barbara Rieseberg



Hægt er kaupa þessar bækur á
amazon.com
Róbert Daníel Jónsson

Senda póst á vefstjóra
© 2006 - 2010 sheltie.is - Allur réttur áskilinn.